Merino Warm Síðerma Ullarnærbolur Herra (180 g/m²)

kr.7.500

thermowave-ullarnærföt
Hlýr og þægilegur síðerma ullarnærbolur úr merínóull sem tryggir að þér verður ekki kalt í vetur.

Merino Warm Innsta lag úr náttúrulegri bakteriuvarðri 100% merínóull. Ofin á einstakan hátt til að veita góða hitaeinangrun auk þess að halda raka frá líkamanum en á sama tíma er hún þunn og létt . Með flötum lásasaum sem ertir ekki húðina.

Efni: 100% Merínóull

Þyngd efnis: 180g/m2

Eiginlekar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

Hlýr, þægilegur og flottur síðerma ullarnærbolur úr 100% MERINO ull. ThermoWave Merino Warm ullarnærbolur tryggir að þér verður ekki kalt í vetur.

thermowave-ullarnærföt
Efni: 100% MERINO Ull
Þyngd efnis: 180g/m2

Eiginleikar:

• Slim fit
• Fljótþornandi
• Losar raka á fullkominn hátt
• Náttúruleg bakteríuvörn
• Heldur líkamslykt í skefjum
• Snið sem takmarkar ekki hreyfigetu
• Flatur lásasaumur sem ertir ekki húðina

Um MERINO ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð.  Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel.  Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.

Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.

Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt til að forðast sýkingu vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

Þyngd Á ekki við
Stærð

XXS, XS, S, M, L, XL, XXL, S/M

Litur

Dökk Gráyrjóttur (Dark Grey Melange), Svartur (Black)

Þér gæti einnig líkað við…