Prodigy Síðar Ullarnærbuxur Herra (180 g/m²)

kr.7.500

SKU: N/A Categories: , , , Tags: , ,

thermowave-ullarnærföt

Léttar og þægilegar síðar ullarnærbuxur.

Prodigy línan er ofin úr merinóull og endurunnum pólýester, hún er þunn og létt en veitir góða hitaeinangrun. Efnið er fljótþornandi og meðhöndlað með silfurjónum sem veitir aukna bakteríuvörn.

Efni: 70% Merino Ull, 30% endurunnin Polyester

Þyngd efnis: 180g/m2

Eiginlekar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

Hlýjar, þægilegar og flottur síðar ullarnærbuxur úr blöndu af Merino (70%) og endurunnum Polyester (30%).  Þessi blanda hentar vel fyrir útivistarfólk þar sem hún sameinar kosti merino ullar og polyester.  Prodigy línan er saumuð á þá vegu að hægt er að klippa fötin á ákveðnum stöðum og þannig er hægt að stytta skálmarnar eftir þörfum án þess að eiga á hættu að flíkin rakni upp.  ThermoWave ullarnærfötin tryggja að þér verður ekki kalt í vetur.

thermowave-ullarnærföt
Efni: 70% Merino Ull, 30% endurunninn Polyester
Þyngd efnis: 180g/m2

Eiginleikar:

Heldur á þér hita

  • Fínofnir þræðir <19µ
  • Náttúruleg bakteríuvörn
  • Einangrar vel

Heldur þér þurrum

  • Fljótþornandi
  • Andar vel
  • Lyktareyðandi

Þægindi

  • Flatur lásasaumur sem ertir ekki húðina
  • Teygjanlegt
  • Verndar gegn útfjólublárri geislun
Um merino ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð. Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel. Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.
Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.
Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt sem ráð gegn að sýking verði vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

Merino ull og gerviefni

Þegar gerviefnum er blandað við ullina er kolefnisporið hærra við framleiðslu og efnið ekki lengur niðurbrjótanlegt á sama hátt. Aftur á móti verður efnið slitsterkara, það er að segja endingartími fatnaðarins lengist ásamt því að þorna hraðar en 100% ull.
Hafið í huga að gerviefni gefa frá sér örplast við þvott. Því ráðleggjum við að notast sé við búnað sem fangar örplast eins og til dæmis Guppyfriend poka.

Stærð

S, M, L, XL, XXL