Umsögn um Direct Alpine Guide Lady

Skeljajakka

Jakkinn er frá tékkneska útivistarmerkinu Direct Alpine og var gjöf frá Gangleri Outfitters.

Direct Alpine er tékkneskt fyrirtæki sem framleiðir útivistarfatnað og fylgihluti. Framleiðsla þeirra fer einungis fram í löndum sem hafa strangar reglugerðir er varða umhverfið. Nánast öll framleiðsla eða um 99% fer fram í Evrópu og þá fyrst og fremst í Tékklandi. Fyrirtækið sjálft hefur mjög skýra umhverfisstefnu sem má lesa nánar um hér https://www.directalpine.com/ecology-sustainable-development.

Jakkinn er til í stærðum S-XXL og kemur í skemmtilegum litum sem má sjá hér:

https://outfitters.is/product/direct-alpine-guide-hardshell-jakki-domu/

 

Heildareinkunn
4.5/5
Gæði og frágangur
4.5/5
Eiginleikar og hönnun
5/5
Þyngd og stærð
4.5/5

    Um er að ræða þriggja laga húðaða harðskel með 20.000 mm vatnsheldni og 100% lokuðum saumum. Jakkinn vegur einungis um 340 gr, pakkast mjög vel þrátt fyrir rennilásana og er hannaður fyrir fjallamennsku, skíði og krefjandi göngur. Jakkinn var prófaður yfir nokkurra mánaða tímabil yfir vetrartímann og fram á vor við fjölbreyttar aðstæður á fjöllum og jöklum, á fjalla-, göngu- og svigskíðum, í léttum og krefjandi göngum, á fjallahjóli og í ísklifri.

     Rannveig Anna (Hæð: 165 cm). Ég prófaði jakkann í stærð M og hentar síddin mér vel. Jakkinn er fallegur í sniðinu og síðari að aftan sem veitir fullnægjandi vernd fyrir veðri og vindum. Hann er örlítið aðsniðinn en þrátt fyrir það hef ég ekki átt í erfiðleikum með að koma öllum nauðsynlegum lögum innan undir. Þegar ég hef þurft að troða mér í dúnúlpuna líka hefur jakkinn runnið örlítið upp að aftan en þá er gott að geta þrengt jakkann neðst.

    Hönnun jakkans er skemmtileg en rennilásinn sem er með tvíhliða rennum liggur upp undir vinstra kjálkabein og ertir því ekki hökuna. Hálsmálið er hátt sem veitir góða vörn yfir höku og munn ef þörf krefur en ef þess gerist ekki þörf eru á kraganum litlir seglar sem hægt er að nota til að bretta hálsmálið til hliðar og auka loftun. Hettan á jakkanum nær vel yfir skíða- eða klifurhjálm og er á henni strekkingarteygja bæði að aftan og á báðum hliðum auk þess sem á hettunni er gott der sem vinnur vel í miklu regni og vindi. Hettan er tiltölulega nett og hamlar sjóninni ekki mikið til hliðanna.

    Mér finnst efni jakkans anda vel og auk þess eru á jakkanum stór rennd loftunargöt á báðum síðum með tvíhliða rennum sem er frábær eiginleiki til að lofta út í púli á meðan rignir eða blæs. Loftopin ná vel fyrir ofan handarkrika og alveg niður með síðum og veitir hönnunin jafnframt sniðuga leið til að komast í vasa í millilögum. Tveir vasar sem rúma stóra síma og rúmlega það liggja ofarlega á sitthvorri hlið jakkans og auðvelt er að komast í vasana og loftgötin þegar maður er með bakpoka eða klifurbelti. Þá er góður netavasi á innanverðum jakkanum auk vasa á tvíhöfðanum þar sem jafnframt er að finna fjarlægjanlegan Recco snjóflóðaendurvarpa. Auðvelt er að renna rennilásum jakkans með þykkum vettlingum. Ermarnar eru vel síðar í samræmi við hönnun skeljajakka til að ná vel yfir vettlinga, mjög gott rými er við úlnlið fyrir þykka vettlinga ef þarf og franskur rennilás til að þrengja að sem auðvelt er að nota. Neðarlega á ermum eru lykkjur sem má krækja í, t.d. vettlingum.

    Þegar ég fékk jakkann fyrst í hendur kom það mér á óvart hvað hann var ótrúlega mjúkur og léttur viðkomu miðað við flesta skeljajakka sem ég hef prófað og var ég mjög spennt að vita hvort hann myndi standast þær kröfur og væntingar sem ég geri til slíkra jakka og var ég jafnvel smá tortryggin. Í stuttu máli hefur jakkinn staðist allar kröfur og meira til og hefur komið virkilega á óvart við krefjandi aðstæður en hann hefur þurft að þola mikinn vind og mikla úrkomu en alltaf komið mér þurri í hús. Ég hef yfirleitt reynt að komast hjá því að klæðast skeljajökkum nema ég virkilega þurfi þess vegna þess hve stífir þeir eru en þessi jakki er mjúkur og lipur og heftir engar hreyfingar. Af þeirri ástæðu er þetta jakkinn sem ég tek alltaf með mér í hvaða ævintýri sem er enda að mínu mati frábær alhliða útvistarjakki sem stenst mínar kröfur.

    Við þökkum Gangleri Outfitters kærlega fyrir þátttökuna!

Skrifað af Rannveig Önnu

Ýttu hér til að versla jakkanum

Þessi jakki var gjöf frá Ganglera Outfitters til prófunar og umsagnar