Merino 3IN1 Ullarnærbuxur Herra (330g/m²)

kr.11.000

SKU: N/A Categories: , , , , Tags: , , ,

thermowave-ullarnærföt

Einstaklega hlýjar ullarnærbuxur fyrir krefjandi aðstæður.

MERINO 3IN1 Mjög hlý og þykk þrigga laga ullarnærföt sem sameina það besta frá merinóull og pólýprópýlene. Pólýprópýlen er næst líkamanum og leiðir raka frá honum ásamt miðjulaginu úr pólýester. Ytra lagið er úr merínóull og  veitir einstaka hitaeinangrun. Slitsterkur fatnaður með góða öndun. Hentar vel i mjög köldu veðri og/eða þegar virkni er lítil. Eins og til dæmis í veiði, vinnu úti við og vetrarfjallamennsku eða til að hækka þæginda og hitastig í svefnpokanum.

Efni Ytra lag: 45% Merínó ull
Miðjulag: 12% Pólýester
Innra lag: 43% pólýprópýlen

Þyngd efnis: 330 g/m2

Litur: Ólívugrænn

Eiginlekar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

Thermowave Merino 3IN1 ullarnærbuxurnar eru hannaðar fyrir mikinn kulda og jafnframt til notkunnar við mikla áreynslu sem og litla. Innra lagið er framleitt úr pólýprópýlen sem leiðir allan raka af mikilli skilvirkni frá líkamanum, er létt, endingargott og ertir ekki húðina. Miðjulagið úr pólýester gefur aukna einangrun og ytra lagið úr merínó ull gefur einstaka einangrun, góða öndun og er náttúrulega bakteríudrepandi.  Ásamt því er við framleiðslu notuð silfurjóna meðferð á efnið sem dregur úr bakteríumyndun og vondri lykt, jafnvel við sem mesta áreynslu.

thermowave-ullarnærföt

Efni Ytra lag: 45% merínó ull, miðjulag: 12% pólýester, innra lag: 43% pólýprópýlen
Þyngd efnis: 330 g/m2
Litur: Ólívugrænn

Eiginleikar:

  • Einstök hitaeinangrun
  • Fljótþornandi
  • Losar raka á fullkomin hátt með mjög góðri öndun
  • Náttúruleg bakteríuvörn
  • Heldur líkamslykt í skefjum
  • Flatur lásasaumur sem ertir ekki húðina og þægileg áferð á efni
  • Slitþolið efni
  • Einstakt efni með tígulformuðum loftvösum sem auka hitaeinangrun
  • Innra lag mjúkt og þægilegt og hentar fólki sem þolir ekki ull
Um merino ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð. Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel. Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.
Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.
Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt sem ráð gegn að sýking verði vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

Merino ull og gerviefni

Þegar gerviefnum er blandað við ullina er kolefnisporið hærra við framleiðslu og efnið ekki lengur niðurbrjótanlegt á sama hátt. Aftur á móti verður efnið slitsterkara, það er að segja endingartími fatnaðarins lengist ásamt því að þorna hraðar en 100% ull.
Hafið í huga að gerviefni gefa frá sér örplast við þvott. Því ráðleggjum við að notast sé við búnað sem fangar örplast eins og til dæmis Guppyfriend poka.

Þyngd Á ekki við
Stærð

3XL, 4XL, S, M, L, XL, XXL