Merino Cooler TruLite Stuttermabolur Herra (150 g/m²)

kr.8.500

thermowave-ullarnærföt

Merino Cooler Trulite stuttermabolirnir eru úr einstakri blöndu af merinóull og bambus sem sameinast í  létt efni sem hefur mikla öndun. Bolurinn heldur þér svölum við mikla áreynslu eða í hita. Blandan er eistaklega fljótþornandi og auk þess heldur ullin á þér hita þegar þess þarf. Náttúrleg bakteríuvörn merínóullar og bambus gerir það að verkum að líkamslykt safnast ekki í efnið.
Merino Cooler Trulite er þægilegur og mjúkur stuttermabolur sem hentar jafnt til útivistar, í ferðalög og til daglegrar notkunar.

Efni: 60% Merino ull. Örfínir 17,5 µm þykkir Merino ullarþræðir stinga ekki og eru þægilegir viðkomu.
40% Bambus

Eiginleikar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

thermowave-ullarnærföt

Merino Cooler Trulite er þægilegur og mjúkur stuttermabolur sem hentar jafnt til útivistar, í ferðalög og til daglegrar notkunar.

Efni: 60% Merínó ull 40% Bambus.
Örfínir 17,5 µm þykkir Merino ullarþræðir stinga ekki og eru þægilegir viðkomu.

Þyngd efnis:  150 g/m²

Eiginleikar:

  • Hitatemprandi – Hjálpar til við að halda líkamanum við kjörhitastig.
  • Andar – Veitir góða öndun og rakaleiðni
  • Lyktareyðandi – Merino ull og bambus eru búin náttúrulegri bakteríuvörn sem takmarkar uppsöfnun líkamslyktar.
  • Þægilegur – Örfínir 17,5 µm þykkir Merino ullarþræðir stinga ekki
  • Léttur – Létt og lipur efnablanda

Um MERINO ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð.  Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel.  Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.

Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.

Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt til að forðast sýkingu vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

 

Bambus þræðir eru ný kynslóð umhverfisvænni textíls sem unnin er úr bambusum. Sjálfsendurnýjun bambusa er hröð og ræktun á þeim krefst ekki notkunnar varnarefna.

Stærð

S, M, L, XL, XXL

Litur

Grænn (Forest Green), Svartur (Black)