Merino Warm Active ullarbolur barna (160 g/m²)

kr.5.600

SKU: N/A Categories: , , Tags: , , ,

thermowave-ullarnærföt
Hlýr og þægilegur síðerma ullarbolur úr merínóull sem tryggir að barninu verði ekki kalt við leik eða íþróttir úti við.

Merino Warm Active línan er hönnuð með tilliti til allskyns leikja úti við, má það vera að renna sér á snjósleða, vera á skíðum eða byggja snjókall. Efnið er ofið úr blöndu af merino ull sem veitir hitaeinangrun, pólyamíð sem eykur endingu og pólýester sem leiðir raka frá líkamanum. Þessi blanda hefur þá eiginleika að efnið hefur góða öndun, er mjúkt og bakteríudrepandi og dregur því ekki í sig líkamslykt.
Þæginleg og létt nærföt með þykkt upp á aðeins 160 g/m2 .

Efni: 47% Endurunnin pólýester, 42% Merino ull, 11% Pólýamíð.

Þyngd efnis: 160g/m2

Eiginlekar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

ThermoWave Merino Warm Active síðerma ullarbolur úr merinóull sem tryggir að barninu verði ekki kalt.

thermowave-ullarnærföt
Efni: 47% Endurunnin pólýester, 42% Merino ull, 11% Pólýamíð.
Þyngd efnis: 160g/m2

Eiginleikar:

  • Fljótþornandi
  • Losar raka á fullkominn hátt
  • Náttúruleg bakteríuvörn
  • Heldur líkamslykt í skefjum
  • Aðsniðið snið sem takmarkar ekki hreyfigetu
  • Bolurinn nær lengra niður að aftan
  • Flatur lásasaumur sem ertir ekki húðina

Um MERINO ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð.  Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel.  Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.

Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.

Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt til að forðast sýkingu vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

Þegar gerviefnum er blandað við ullina er kolefnisporið hærra við framleiðslu og efnið ekki lengur niðurbrjótanlegt á sama hátt. Aftur á móti verður efnið slitsterkara, það er að segja endingartími fatnaðarins lengist ásamt því að þorna hraðar en 100% ull.
ATHUGIÐ! Gerviefni gefa frá sér örplast við þvott. Því ráðleggjum við að notast sé við búnað sem fangar örplast eins og til dæmis Guppy friend poka.

Stærð

110-116, 122-128, 134-140, 146-152

Þér gæti einnig líkað við…