Merino Xtreme Síðerma Ullarnærbolur Með Háum Renndum Hálskraga Dömu (220 g/m²)

kr.11.000

SKU: N/A Categories: , , , Tags: , , , ,

thermowave-ullarnærföt

Hlýr og þægilegur síðerma ullarbolur með háum hálskraga.

Merino Xtreme sameinar það besta frá merinóull og pólýester. Tveggja laga ullarfatnaður þar sem pólýester er næst líkamanum og leiðir raka frá honum á meðan ytra lagið úr merínóull veitir einstaka hitaeinangrun. Slitsterkur fatnaður með góða öndun. Hentar vel fyrir fjallgöngur, hlaup eða á skíði í köldu veðri.

Efni: Ytra lag: 80% Merino / 20% Polyamide Innra lag: 100% polyester.

Þyngd efnis: 220g/m2

Litur: Svart/Gráyrjóttur

Eiginlekar merínóullar:

  • Fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og stingur ekki.
  • Hefur náttúrulega bakterívörn sem heldur líkamslykt í skefjum
  • Létt, andar vel og gefur góða einangrun
  • Dregur raka frá líkamanum og heldur honum þurrum
  • Endurvinnanleg og niðurbrjótanleg.
Clear

Thermowave Merino Xtreme síðerma ullarnærbolurinn er hannaður fyrir mikinn kulda og jafnframt til notkunar við mikla áreynslu. Innra lagið er framleitt úr pólyester sem leiðir allan raka af mikilli skilvirkni frá húðinni og yfir í ytra lag sem er gert úr merino ull.  Við framleiðslu er sett “Thermowave odor-control” filma á fatnaðinn sem dregur úr bakteríumyndun og vondri lykt, jafnvel við sem mesta áreynslu.

thermowave-ullarnærföt
Efni: Ytra lag: 80% Merino / 20% Polyamide Innra lag: 100% polyester.
Þyngd efnis: 220g/m2
Litur: Svart/Gráyrjóttur

Eiginleikar:

• Einangrar vel
• Fljótþornandi
• Losar raka á fullkominn hátt með mjög góðri öndun.
• Náttúruleg bakteríuvörn
• Heldur líkamslykt í skefjum
• Snið sem takmarkar ekki hreyfigetu
• Flatur lásasaumur sem ertir ekki húðina og þægileg áferð á efni.

Um merino ull

Merino ullin er fíngerðari og mýkri en venjuleg ull og hentar vel fólki með viðkvæma húð. Hún stingur ekki og er því þægileg að klæðast sem innsta lag næst húðinni. Einangrunareiginleikar merino ullar eru einstakir en hún er að auki létt og andar vel. Merino ull er með náttúrulegri bakteríuvörn sem heldur líkamslykt í skefjum. Merino ull er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun. Hún myndar ekki stöðurafmagn og trefjarnar hrinda frá sér óhreinindum og ryki. Vegna þessara eiginleika er merino ullin tilvalin þegar kemur að því að velja sér ullarnærföt.
Merino ullin sem Thermowave notar er frá bændum í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Þar fá kindurnar að beita frítt og reynt er að hafa sem minnst afskipti af þeim. Til að tryggja sjálfbæra og ábyrga ræktun á merinóull gerir Thermowave langtíma samninga við reynda og trausta bændur.
Thermowave ábyrgist að öll merinoull sem er notuð í fatnað þeirra er Mulesing free. Mulesing er það kallað þegar hluti af skinni á afturenda kindarinnar er fjarlægt sem ráð gegn að sýking verði vegna sníkjudýra. Þetta er ekki gert hjá þeim bændum sem Thermowave er í samstarfi við.

Merino ull og gerviefni

Þegar gerviefnum er blandað við ullina er kolefnisporið hærra við framleiðslu og efnið ekki lengur niðurbrjótanlegt á sama hátt. Aftur á móti verður efnið slitsterkara, það er að segja endingartími fatnaðarins lengist ásamt því að þorna hraðar en 100% ull.
Hafið í huga að gerviefni gefa frá sér örplast við þvott. Því ráðleggjum við að notast sé við búnað sem fangar örplast eins og til dæmis Guppyfriend poka.

Þyngd Á ekki við
Stærð

XS, S, M, L, XL