Sterkir, stöðugir og einstaklega þægilegir gönguskór fyrir allar þær aðstæður sem Ísland hefur upp á að bjóða. Slitsterkt Nubuk leður með grófum Vibram Masai sóla. GORE-TEX klæðning sem andar ásamt climate control innsóla tryggja aukin þægindi. Gúmmihringur ver leðrið í krefjandi landslagi, til dæmis þegar gengið er á hrauni eða í grýttum fjörum.
Góðir fyrir allar aðstæður, sér í lagi þegar gengið er langar vegalengdir með þungar byrðar. Hentar öllum göngugörpum og þá sér í lagi þeim sem reglulega takast á við erfiðar aðstæður s.s. björgunarsveitafólk.
- Handgerðir í Þýskalandi
- Slitsterkt Nubuck leður
- Grófur Vibram Masai sóli
- Gúmmivörn allan hringinn
- Climate control innsóli
- FlexFit ökklastuðningur